Við tökum að okkur ýmiskonar verkefni, stór sem smá, m.a. venjuleg þrif, flutningsþrif, gluggaþvott og teppahreinsun fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög.
Allir byrja smátt og þá gefst tími til að þróa gæða þjónustu, byggja upp traust og leggja metnað í hvert verkefni sem við tökum að okkur.
Skýrir verkferlar
Traust og reynslumikil
Gæða þjónusta
Umhverfisvæn þjónusta
Við skiljum hversu mikilvægt er að huga að plánetunni okkar og notum því eins lítil efni og hægt er. Við notum einungis bestu tæki, áhöld og vélar sem völ er á. Við notum t.d. gufuhreinsi sem drepur allt að 99% baktería. Gufuhreinsi sem notar einungis vatn við hreinsun, skilur svæðið því eftir sótthreinsað og vinnur gegn óæskilegri lykt og vinnur vel á ryki og olíublettum.

Vinnusemi, vönduð vinnubrögð og áhugi á skilvirkum verkferlum og gæða þjónustu hefur skilað okkur traustum og ánægðum viðskiptavinum í bæjarfélaginu. Endilega prófaðu þjónustu okkar.
Ég fékk Fagleg þrif til að gera allsherjarhreingerningu hjá mér á síðasta ári og síðan hafa þau
komið og gert húsið hreint á tveggja vikna fresti. Ég mæli heilshugar með þeim. Þau eru fagleg, vandvirk og áreiðanleg í alla staði.
Bjarnheiður Hallsdóttir
Ég hef fengið fagleg þrif til að þrífa fyrir mig bæði gólf og glugga. Þjónustan er alveg frábær og ég mæli 100% með þeim.
Jóhanna Hugrún Hallsdóttir
Faglegþrif fá okkar bestu meðmæli þegar kemur að heimilisþrifum. Þau eru einstaklega vandvirk, nákvæm, sveigjanleg og skila góðri vinnu í hvert einasta sinn.
Líf Lárusdóttir og Ragnar Gunnarsson
Við hjá Dalbraut 4 húsfélagi á Akranesi tókum þá ákvörðun á síðasta ári að semja við JODO ehf. um gluggaþvott 26 íbúða ásamt þrifum á glerlokun á svölum og gleri á svalagöngum. Verkið stóðst allar væntingar, vel unnið, verðið sanngjarnt, allt á réttum tíma og íbúar sáttir. Við höfum ákveðið að semja að nýju við JODO ehf. um verkið í vor. Takk fyrir okkur.
F.h. Dalbraurar 4, húsfélags, Kristján S. Gunnarsson